|  | 
         
          |  | 
   
    |  |   
    | Sara Björnsdóttir |   
    | Hellirinn bak við ennið / The cave behind the forehead |   
    | 04. 03. 2006 - 26. 03. 2006 |   
    |  |   
    | Listamenn eftirnútímans hafa flestir horfið frá því að höndla sannleikann stóra, með brotum sem sjaldnast verður rakað saman, leitast þeir við að varpa ljósi á
 sundraðan veruleika.
 
 Þegar maður kemur niður í kjallarann kviknar á nokkrum tírum í "hellinum bak
 við ennið"; myndlistin er neðanjarðar eins og undirmeðvitundin, rými sem manni
 er venjulega ekki boðið inní hjá ókunnugum. Titillinn gefur til kynna að maður
 sé staddur í völundarhúsi hugsunarinnar. Það er dimmt og glæturnar eiga
 upptök sín í afkimum, bak við hulur sem blakta, skugga sem flökta.
 Hellirinn í ríkinu hans Platons lýstur niður í hugann, skuggamyndirnar,
 ferðalagið að uppsprettu ljóssins og voninn um að sjá skýrt, þó ekki sé nema í
 augnablik.
 
 Eins og ljósið endurkastast í gólfinu brunar hljóðið á milli veggjana og tengir
 rýmið í heild. Gólfið lítur út fyrir að vera hált, það er enga örugga fótfestu
 að fá. Áhorfandinn (Maður??) kemur inn með sinn skugga sem flöktir í tjöldunum
 og spelgast í hellisgólfinu og verður tímabundið partur af verkinu.
 Í huganum er maður oftast einn, einn við stýrið er maður frjáls til að ferðast
 hvert sem er, spóla í sama farinu eða bruna af stað á næsta ófyrirsjáanlega
 áfangastað.
 Það er kannski einmitt þar sem hreyfingin er mest; á leiðinni þegar allt
 virðist í kyrrstöðu...(einmitt)þar sem tjaldið flettist frá og hljóðið brunar
 frá einum stað til annars,þar sem engin sér þau þjóta milli afkima, óhljóðin í
 hellinum bak við ennið.
 
 Nína Magnúsdóttir
 |   
    |  |   
    |  |   
    |  |  
    |               |  |  | 
         
          | Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík
 
 kob@this.is |