  | 
        
         
          |    | 
          
   
      | 
   
   
    | Kristín Karólina Helgadóttir - Arnar Ásgeirsson | 
   
   
    | Ómælislaug / Infinity Pool | 
   
   
    | 23. 08. 2024 - 29. 09. 2024 | 
   
   
    |   | 
   
   
    Föstudaginn 23. ágúst opnar sýningin Ómælislaug í Kling & Bang. Þar munu listamennirnir Arnar Ásgeirsson og Kristín Karólína Helgadóttir sýna ný verk sérstaklega unnin fyrir sýninguna.  
 
Á sýningunni tefla þau fram verkum sem benda á kíminn hátt til þess hvernig hversdagsleg kerfi, sem við erum þátttakendur í, móta og stýra hegðun okkar og gildismati. 
 
Í verkum sínum dregur Arnar  fram hversdagslegar og misþekktar menningartilvísanir, endurgerir og gefur þeim nyja merkingu. Með kunnuglegu myndmali veltir Arnar fyrir ser hugleiðingunni um hið upprunalega og eftirmynd og muninum sem liggur i þvi að frumskapa og herma eftir. Arnar er einn stofnenda listamannarekna rýmisins Open. Arnar Ásgeirsson lauk BA prófi í listum frá Gerrit Rietveld Academy og útskrifaðist með MA gráðu frá Sandberg Institute í Hollandi. 
 
 
Kristín Karólína notar ýmsa miðla í vinnu sinni til þess að kasta ljósi á þá innri togstreitu og dulinn tvískinnung á milli vestrænna lífshátta og náttúrunnar sem maðurinn byggir. Draumkenndar myndhverfingar ásamt leik með hið hversdagslega, sem rata til óvæntra opinberanna, hjálpa áhorfendum að halda sér á floti í kviksyndi samtímans. Hún hefur verið meðlimur í sýningarhaldi listamannarekinna rýma, Kunstschlager í Reykjavík og ABC Klubhuis í Antwerpen. Árið 2024 sýndi hún verk í sýningu Listasafns Reykjavíkur D-vítamín. Kristín Karólína Helgadóttir lauk BA námi í listfræði og heimspeki árið 2015 frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í myndlist frá KASK í Belgíu árið 2021. 
 
 
Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarmaður hefur skrifað sérstaklega texta fyrir sýninguna. 
 
 | 
   
   
    |   | 
   
   
    Marshallhúsið 
Grandagarður 20 
101 Reykjavík 
Ísland / Iceland 
 
Opnunartímar/Opening hours 
Mið til sun 12 – 18 
Wed-Sun 12 - 6 pm. 
lokað á mánudögum / þriðjudögum 
closed on Mondays / Tuesdays 
 
Aðgangur ókeypis 
Admission Free | 
   
   
    |   | 
   
  
 | 
          
	
 | 
        
         
          |  
Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík
 
 kob@this.is |