611005759_10164299051605479_2733045715808018413_n
Minning Goddur
09. 02. 2026 - 09. 02. 2026
 
Listin í þessu landi hefur misst mikið við fráfall Godds. Hann fylgdist með og tók ofurvirkan þátt í senunni hér í hálfa öld og miðlaði stöðugt öllu því safaríka sem hann uppgötvaði sjálfur og sem hann lærði af öðrum. Og hvar sem hann fór byggði hann upp nærandi samfélag í kringum sig.

Goddur var sagnamaður af guðs náð, skildi mikilvægi þess að þekkja góða sögu og miðla henni sem víðast og gera það svo vel að allir vildu hlusta. Þannig flutti hann sögur kynslóðarinnar á undan sér í listasögunni áfram til okkar, kynslóðanna á eftir og bjó til dýrmæta samfellu í hugsun, þvert á tíma.

Hann brann fyrir myndmál og sjónmenningu og hafði einstakar gáfur til að lesa í það hvort sem var í listaverkum, hönnun, fréttum eða dægurmenningu og setti það svo í samhengi við söguna, frumspekina og guðdóminn. Merking skiptir máli.

Goddur hafði brennandi áhuga á listum en hann hafði líka brennandi áhuga á fólki. Best var þegar þetta gat blandast saman, áhugaverð list og spennandi fólk. Hann vildi vita hver var að gera hvað og hvernig. Við minnumst margra flissandi kaffibollanna þar sem kjamsað var á fréttum af manni og öðrum. En þessi áhugi á fólki lýsti sér þó helst í því að hann sá eitthvað merkilegt í svo ótal mörgum. Goddur hafði einstakt lag á því að sjá magnaða möguleika í fólki og segja þeim frá því á skýran hátt og hefur þannig haft mótandi áhrif – og mjög oft úrslitaáhrif – á gríðarmarga listamenn. Hann hefur gefið svo mörgum byr undir báða vængi og sjálfstraust til að fóta sig á þessu hála listasviði.

Við í Kling & Bang syrgjum einstakan samstarfsfélaga til áraraða og kæran vin. Goddur var viðloðandi starfsemi Kling & Bang nánast frá upphafi, tók þátt í mörgum verkefnum með okkur, bæði hérlendis og erlendis, hannaði fjölda plakata og sýningarskráa og tók óteljandi stórkostlegar ljósmyndir sem eru hryggjarstykkið í varðveislu sögu listamiðstöðvarinnar KlinK & BanK sem við starfræktum á árunum 2004-2005 og var aðsetur vel á annað hundrað listamanna. Vinnustofa hans í KlinK & BanK var hjarta sem sló stöðugt og listafólk streymdi að og frá. Það var ómetanlegt að geta leitað ráðelgginga hjá Goddi því hann hafði einstakt nef fyrir því sem var ferskast og mest spennandi hverju sinni og var fljótur að átta sig á því hvað væri þess virði að lyfta upp og taka þátt í. Þeirri visku deildi hann óhikað og var örlátur á tíma sinn.

Goddur var hjartahlýr, traustur vinur vina sinna og alltaf til í eitthvað rugl með okkur.

Við sem eftir stöndum reynum nú að hafa minninguna um hans margróma mögnuðu sýn sem leiðarljós fram á veginn, sem liggur örugglega í hring hvort eð er og einhvers staðar náum við í skottið á honum. Áður en hann tekur Goddinn á þetta og stingur af í þarnæstu vídd.
 
 
 
 
 
Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík kob@this.is