 |
| |
 |
| Reto Leuthold/Paul Lipp - Sara Björg Bjarnardóttir |
| Flat Earth Round Tables - Vind Auga/Wind Eye |
| 18. 04. 2026 - 24. 05. 2026 |
| |
Sara Björg sýnir innsetningu í Kling og Bang, Vind Auga, sem beislar atorku rýmisins og hleypir blæstrinum inn. Sýningin ferðast í gegnum op og glugga og fylgir þeim frumöflum sem fara þar í gegn, þar sem líkaminn er dreginn inn í rýmið og rýmið inn í líkamann. Það sem sést ekki tekur yfir, þrýstir, togar og mótar upplifunina í andardrætti, hreyfingu og skynjun.
Í listsköpun sinni vinnur Sara Björg með skúlptúra, innsetningar og gjörninga. Hún vinnur með rýmið sem upphafspunkt og í gegnum ferlismiðaða nálgun eiga sér stað efnislegar samræður, oft mótaðar af vistfræðilegum og sálfræðilegum hugmyndum. Hún kannar líkamlega upplifun rýmisins, svo sem byggingarfræðilegar aðstæður, og skoðar hvernig innri kerfi, hreyfing og skynjun móta reynslu.
Lipp & Leuthold er listamannatvíeyki sem skipað er þeim Reto Leuthold og Paul Lipp. Báðir listamennirnir námu við HGK Lucerne og hafa starfað sem sjálfstætt starfandi listamenn frá miðjum fyrsta áratugi aldarinnar. Listsköpun þeirra beinist að sameiginlegu sköpunarferli þar sem málverk og höggmyndalist renna saman í eina heild. Í verkum þeirra mætast ólíkar tilhneigingar þar sem persónulegar nálganir rekast á glundroða hins pólitíska hversdagsleika, sem og á hvorn annan, í óútreiknanlegu samspili.
Opnun: 18. Apríl kl 17.
Sýningartími: 18.04.26 - 24.05.26, opið miðvikudag-sunnudags 12-18.
Grandagarður 20
Frítt inn. Verið velkomin.
Sýningin er styrk af Reykjavíkurborg, Myndlistarsjóð og Pro Helvetia.
|
| |
|
| |
|
|
|
Grandagarður 20 - 101 Reykjavík
kob@this.is |