0aa
Örn Alexander Ámundason
Sýning sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna- An Exhibition That Might Be Nominated for the Icelandic Art Prize
24. 08. 2026 - 04. 10. 2026
 
Á hverju ári eru valdir nokkrir myndlistarmenn til þess að sitja í nefnd sem ákveður hvaða kollegar þeirra og sýningar eru tilnefndar til Íslensku myndlistarverðlaunanna. Þau reyna að sjá eins mikið af sýningum og þau geta, funda reglulega og í byrjun hvers árs þá taka þau ákvörðun. Það er ekki fyrr en eftir að þessi ákvörðun er opinberuð að við fáum að vita hver þau eru, í millitíðinni fara þessir nefndarmenn huldu höfði. Í mars verða Íslensku myndlistarverðlaunin afhent, og einkasýning Arnar Alexanders í Kling & Bang, Sýning sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna, á alveg jafnmikinn séns á tilnefningu og allar aðrar sýningar.


Umræðan um gangverk listheimsins fer oftast fram í hálfhljóði. Listamenn ræða, kvarta, tauta og kvabba sín á milli en yfirleitt ekki fyrir framan annað fólk. Einhver gæti haldið því fram í litlum hópi að opin köll geri sýningarstjóra lata - svo gæti einhver kvartað yfir því að það séu ekki bara myndlistarmenn að gera list í opinberu rými. Örn Alexander Ámundason tekst nú á við þessi mál fyrir allra augum í nýjum verkum á einkasýningu í Kling & Bang. Þar sýnir hann meðal annars nýtt vídeóverk sem beitir formi ágengra rökræðna, sem þekkist af samfélagsmiðlum til að takast á við stór álitamál í samtímanum, til að kryfja hitamál úr afkimum myndlistarumræðu sem brenna á fáum.

Örn Alexander Ámundason (fæddur 1984, útskrifaður með BFA 2009 og MFA 2011 frá Malmö Art Academy) vinnur á óþægilegu svæði. Hann teflir fram verkum sem setja áhorfandann gjarnan í áhugaverða en oft pínlega stöðu. Á öruggan og yfirvegaðan hátt setur hann fram verk sem geta jafnvel látið hellast yfir áhorfendur tilfinningu sem mætti lýsa sem cringe, sem er ástand sem margir ganga almennt mjög langt til að forðast og er á lúmskan hátt mjög mótandi í menningu okkar samtíma. Til að forðast cringeið er orðinn til stærðarinnar menningarheimur þar sem kaldhæðni og einlægni eru orðin svo samtvinnuð að nánast ógerningur er að greina á milli. Örn hins vegar sendir áhorfendur beint í miðju þess, án þess þó að við getum alltaf greint á milli hvað hann er einlæglega að meina og hvar hann er að spila með formið. En varla er annað hægt en að horfa inn í hægsullandi ólguna, sem er yfirgengileg og ómerkileg í senn. Hann hefur áður unnið opinskátt og varfærnislega með vandræðalegheit og núansa í hversdagslegum samskiptum, hlutum og aðstæðum en hefur undanfarið beitt þeim brögðum á innviði síns eigin fags, myndlistarkerfisins, og það gerir hann á þessari Sýningu sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna. Svo vitnað sé í ónefndan listamann áður en hann gekk inn á sýningu ónefnds listamanns: “Þetta verður spennandi”.


Dagskrá

21. ágúst, á opnun föstudag kl. 17:30 - Gjörningur
5. september, laugardag kl. 14 - Gjörningur
13. september, sunnudag kl. 14 - Gjörningur
24. september, fimmtudag kl. 20 - Listamannaspjall
3. október, laugardag kl. 14 – Gjörningur
 
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.
Kling & Bang er styrkt af Reykjavíkurborg.



Kling & Bang
The Marshallhouse
Grandagarður 20
101 Reykjavík

Opið mið-sun kl.12-18

Engin aðgangseyrir
 
 
 
 
Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík kob@this.is