 |
| |
 |
| Gústav Geir Bollason - Rakel Andrésdóttir |
| Rek Ryk - Mjúkur sandur |
| 14. 10. 2026 - 14. 10. 2026 |
| |
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýninganna Rek Ryk eftir Gústav Geir Bollason og Mjúkur sandur eftir Rakel Andrésdóttur í Kling & Bang laugardaginn 17. október klukkan 17.00.
Rek Ryk
Gústav Geir Bollason
Fiskilína sekkur niður í hafið. Rekaviður berst á land. Ryk safnast fyrir í herbergi. Á sýningu Gústavs Geirs Bollasonar, Rek Ryk, berast efni undan kröftum sem þau ráða ekki við, safnast saman og skilja eftir sig ummerki hreyfinga sem aðeins eru sýnilegar að hluta. Með veiði, teikningu og spuna kannar sýningin hvernig við öðlumst þekkingu á umhverfi okkar í gegnum áþreifanleg kynni við efni, staði og önnur lífsform.
Í gegnum sýninguna tengja línur saman hluti sem annars væri erfitt að leiða saman. Fiskilínan hverfur undir yfirborðið, þráðurinn safnar saman dreifðu efni og blýanturinn dregur fram ummerki hreyfinga sem taka á sig mynd í teikniferlinu. Klukkur, myndavélar, vélar og mannvirki á snúningi skrá ólíkar birtingarmyndir endurtekningar, á meðan hringir ogd iður þeysast æ hraðar í kringum hverfula kyrrðina í miðjunni.
Mjúkur sandur
Rakel Andrésdóttir
Á sýningunni Mjúkur sandur sýnir Rakel ný vídeóverk og skúlptúra unnin á árinu. Sýningin fjallar um aftengingu við umhverfið, annað fólk og okkur sjálf. Aðalpersónur verksins eru kóralstytta frá Tenerife og Himalayan-salt lampi sem eiga í ástlausu sambandi. Þau ferðast um á túristastaði utan háannartíma: um uppþornaða strönd, skíðasvæði án snjós og á rómantískt hótel á miðju byggingarsvæði. Í gegnum ferðalagið fylgjumst við með hægum og yfirvofandi endalokum sambands þeirra og heimsins í kringum þau. |
| |
Gústav Geir Bollason (f. 1966) er listamaður og kvikmyndagerðarmaður, búsettur á Norðurlandi í litla strandþorpinu Hjalteyri þar sem hann stýrir sýningarrýminu Verksmiðjan. Hann býr til teikningar, skúlptúra, hreyfimyndir, myndbönd og kvikmyndir og sameinar oft þessa miðla í innsetningar sem kynda undir skálduðum framlengingum veruleikans.
Rakel Andrésdóttir (f. 1997) er myndlistarkona og kvikmyndagerðarkona sem vinnur mikið með hreyfimyndir. Hún hefur tekið þátt í samsýningum á Hamraborg Festival, í Gallery Käytävä í Finnlandi, Harbinger, Sind og Open í Reykjavík. Hún hefur dvalið í residensíum í Eistlandi, Noregi og Finnlandi og hélt opna vinnustofu í Gryfjunni í Ásmundarsal. Árið 2025 hlaut hún Edduna fyrir heimildarstuttmyndina sína Kirsuberjatómatar. Rakel lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020 og námi í hreyfimyndagerð við FAMU í Tékklandi árið 2023.
Sýning er styrkt af Myndlistarsjóði, Reykjavíkurborg og Ægir brugghús
|
| |
|
|
|
Grandagarður 20 - 101 Reykjavík
kob@this.is |