annaposter
Anna Guðjónsdóttir
Holur Himinn Hulið Haf / Hollow Sky Hidden Ocean
12. 04. 2025 - 25. 05. 2025
 
Opnun laugardaginn 12.apríl kl.17.00

Velkomin á opnun á nýjum verkum Önnu Guðjónsdóttur í Kling & Bang laugardaginn 12.apríl frá kl.17-19.

Á sýningunni Holur Himinn Hulið Haf hefur Anna gert ný verk fyrir rýmin í Kling &
Bang. Hún vinnur yfirleitt með sýningarrýmið og virkjar það sem hluta af
heildarverkinu. Það má segja að hún noti rýmið sem einskonar ósýnilegan blindramma.
Verk sýningarinnar eru notuð í myndbygginguna og vinna saman sem heild.
Allir krókar og kimar rýmisins eru virkjaðir, gólfið verður að teikningu, gluggar og
veggir að málverkum. Þetta tvinnar hún saman við málverk og teikningar unnar á
undanförnum árum. Með þessum vinnubrögðum verður Kling & Bang að sérstakri
heild eða maður gæti kannski sagt sérstökum stað. Fyrir Önnu er þetta staður
ákveðins uppruna.
„Sýningarskápurinn“ er hugtak, sem Anna hefur notað í sinni myndlist í gegnum
tíðina. Bæði, sem hjálpartæki til að skilja betur samhengi náttúru og
menningar og sem tákn fyrir þekkingu og sögu. Þegar við göngum inn í rýmið erum
við að ganga inn í einhverskonar sýningarskáp en einnig að ganga inn í málverk.

Myndlist Önnu Guðjónsdóttur á rætur að rekja til málverksins og náttúrunnar.
Myndlist Önnu Guðjónsdóttur á rætur að rekja til málverksins og náttúrunnar.
Hún ólst upp að hluta til á Þingvöllum, sem hafði áhrif á hennar náttúrusýn og þróaði Anna sinn brennandi áhuga á náttúrunni með ferðalögum á fjarlæga staði, m.a. á Svalbarða og víðar. Einnig með því að skoða náttúrugripasöfn sem og að rannsaka og fræðast um hefð landslagsmálverksins.
Hún veltir fyrir sér hvernig hægt er að skilgreina sig, sem hluta af náttúrunni í dag og hvaða möguleikar eru til staðar til að vera meðvitaðri um eigin sögu og eigin sögu í tengslum við alheimssöguna.

Árið 2022 hóf Anna samvinnu við hóp alþjóðlegra vísindamanna þar sem
rannsóknarefnið var „eldfjöll, loftslag og saga“. Úr þessari samvinnu hafa komið
textar, sem birtir voru á alþjóðavettvangi og tvær myndlistarsýningar, einkasýningin „Curiosity Unbound“ í Bielefeld, Þýskalandi, 2023 og samsýningin „Magma Rising“ í Heong Gallery, Cambridge University, Bretlandi, 2025.
Þar gerði Anna 5 x 7 metra veggverk.
https://magmarising.org

Anna Guðjónsdóttir fæddist í Reykjavík og ólst upp í Vogahverfinu og á Þingvöllum.
Hún var tvö ár í Myndlista- og handíðaskólanum en þaðan lá leiðin til Hamborgar þar sem hún lauk námi við Listaháskólann á níunda áratugnum.
Anna hefur hlotið verðlaun fyrir verk sín bæði hérlendis og erlendis, m.a.
Edwin Scharff verðlaunin, Hamborg, 2007 og listaverðlaun Edstrandska Stiftelsen í
Svíþjóð, 1999. Hún hefur tekið þátt í alþjóðlegum sýningum eins og í Palais de
Tokyo, Paris 1998 og í safni Falckenberg í Deichtorhallen, Hamborg 2025. Sýning
Önnu „pars pro toto“ í Hafnarhúsinu 2019 var tilnefnd til Íslensku
Myndlistaverðlaunanna.
Eins og er starfar Anna að mestu í Hamborg og Glückstadt en er alltaf með annan
fótinn á Íslandi.
 
Kling & Bang
Marshallhúsið
Grandagarður 20
101 Reykjavík
Ísland

Opnunartímar
Mið til sun 12 – 18
fim 12 – 21
lokað á mánudögum/þriðjudögum

Enginn aðgangseyrir
 
 
 
 
Grandagarður 20 - 101 Reykjavík kob@this.is