|  | 
         
          |  | 
   
    |  |   
    | Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson |   
    | Snúningshraði - Rate of Rotation |   
    | 09. 12. 2023 - 04. 02. 2024 |   
    |  |   
    | Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (f. 1997) leggur megináherslu á eigin sköpunarferli sem einkennist að miklu leyti af tilraunamennsku. Hugmyndir þurfa sinn tíma og rými til aað blómstra, því kýs Vilhjálmur að festa sig ekki við einn ákveðin miðil. En sjalf verkin verða til út frá ýmsum kveikjum; einhverju eftirtektarverðu á göngutúr, eða samræeðu. Kveikjurnar spretta út frá forvitni og áhuga Vilhjálms fyrir umhverfi sínu, fyrir einhverju sem hann skilur ekki alveg sjálfur eða vill skilja betur. 
 Vilhjálmur útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Hann er meðstofnandi listasamlagsins póstdreifing og er fí hljómsveitunum Korter í flog og Glupsk. Vilhjálmur sýndi nýlega verk í London á samsýningunni 'Nothing Pure' hja IMT gallery. Snúningshraði er fyrsta einkasýning Vilhjálms.
 
 
 Ímyndaðu þér hvað var á seyði fyrir fimm þúsund árum
 
 Hvernig er umhverfið
 
 Komdu því á trjábörk,
 
 Komdu því á blað.
 
 Virtu fyrir þér tyggjóklessu
 
 Mótaðu skúlptúr með óskýrt notagildi
 
 Horfðu á hlut í gegnum tíu aðra hluti
 
 Prófaðu að ýta á alla takkana
 
 (Frá sjónahorni viftu)
 
 Mundu eftir gröllurunum.
 |   
    |  |   
    |  |   
    |  |  
 |  | 
         
          | Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík
 
 kob@this.is |