 |
|
 |
Daníel Björnsson, Helgi Már Kristinsson, Ingo Fröhlich, Ynja Blær |
GROTTO RE |
07. 06. 2025 - 13. 07. 2025 |
|
Á sýningunni GROTTO RE má sjá ný verk eftir Ynju Blæ, Daníel og Helga Má og Ingo Fröhlich.
Ynja Blær vinnur helst í miðli blýantsteikningarinnar en inntak verka hennar er gjarnan hugleiðing á vitninu, vitundinni sem skynjar lífið. Teikningarnar eru unnar í lögum yfir langan tíma, ýmist á pappír, steypu, eða grjót. Lýsa má ferlinu hennar eins og „long exposure” á filmumynd, þar sem mismunandi birtuskilyrði fá að máta sig inn í umhverfið og eftir verður kjarni þess, jafnvel kjarni vitundarinnar sem í því býr.
Daníel og Helgi Már heimfæra verk sitt Grotto Berlin sem þeir unnu saman árið 2014 upp á aðstæður í dag. Þeir vinna með hleðslu minnis og tilfinninga í rými, bæði í listasögulegu og veraldlegu samhengi. Titill verksins vísar til Merzbau verka Kurt Schwitters, en hann var brautryðjandi í framúrstefnu myndlist 20. aldar. Schwitters endurskilgreindi samtímalistina með því að nota fundið efni, oft á tíðum vanefni og endurhugsaði mörk forms og rýmis. Verk hans – sérstaklega Merzbau – virka eins og nútíma hellar: kaotísk, lífræn umhverfi byggð úr leifum hversdagsleikans. Sögulega séð þjónuðu manngerðir hellar sem millibilsástand eða rými fyrir líkneski til trúarlegar iðkunar. Einhverskonar millibil milli hins veraldlega heims og handan heimsins, þar sem þeir blönduðu saman hinu náttúrulega og tilbúna, hinu heilaga og hinu óhelga. Merzbau Schwitters færir þessa hefð inn í samtímann og fyllir sögulegan anda hellisins með nýrri efnislegri meðvitund sem fæðist úr stríði, landflótta og sundrungu samtímans.
Notkun Schwitters á fundnum hlutum innan merkingarkerfis myndlistarinar á ekki rætur sínar að rekja til varanleika heldur til umbreytinga. Þessi nálgun tengist ruslahaugum sögunnar sjálfrar – lögum hennar, glötun og undarlegum samsetningum. Í stað þess að gera minnisvarða um fortíðina skapaði Schwitters rými sem önduðu af hverfulleika og spuna. List hans stendur gegn hreinum línum rökhyggjunnar og býður í staðinn upp á áþreifanlega en óstöðuga ljóðræna kenningu þar sem ný form koma fram úr rústum.
Í Kling & Bang verður til önnur ítrun af verki þeirra Ingo, Daníels og Helga Más og áfram verður hleðsla á formum, tilfinningum, tíma og anda höfð að leiðarljósi. Í kringum þessi verk myndast andrými þar sem verk Ynju Blævar njóta sín. Lag eftir lag, öll vinna listamennirnir með hleðslu – hleðslu á tilfinningum, þyngslum, öðru lagi af málningu, önnur umferð af blýanti, meira og aftur meira. |
|
Kling & Bang
Marshallhúsið
Grandagarður 20
101 Reykjavík
Ísland
Opnunartímar
Mið til sun 12 – 18
fim 12 – 21
lokað á mánudögum/þriðjudögum
Enginn aðgangseyrir |
|
|
|
Grandagarđur 20 - 101 Reykjavík
kob@this.is |